Skólinn

Teikning af Fjólu og samnemendum hennar ásamt tveimur kennurum.

Dalskóli er án aðgreiningar og öll börn þangað velkomin óháð andlegu og líkamlegu atgervi, menningu og trú.

Grunnhugmynd um um starfið í skólanum er að þar líði öllum vel, að börnin fái að dafna, nema og blómstra. Í skólanum er lögð rækt við sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi starf.

Dalskóli er samrekinn leikskóli, grunnskóli og frístundaheimili. Í grunnskólanum er 1.-10. bekkur. 

Skólastjórnendur

Skólastarfsemi

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Dalskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Dalskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi. 

  • Skoða skólanámskrá

Skólareglur

Hér koma skólareglur

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn.

 

Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi.

 

Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar. 

Teikning af tveimur ráðgjöfum í hægindastólum.

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Meginhlutverk skólaráðs að vera vettvangur fyrir alla fulltrúa skólasamfélagsins til að eiga samráð um málefni skólans.

Mat á skólastarfi

Markmið mats og eftirlits með gæðum starfsins er m.a. að veita upplýsingar um skólastarfið, árangur þess og þróun.

Skólahverfi Dalskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og lögheimili barnsins ræður því í hvaða hverfisskóla það fer.

 

Barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. 

 

Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Dalskóla.