Varðliðar umhverfisins

Dalskóli sigraði!
Varðliðar umhverfisins
Unglingadeild Dalskóla sigraði í verkefnasamkeppninni Varðliðar umhverfisins árið 2025. Það var einróma mat valnefndar að nemendur og starfsfólk unglingadeildar Dalskóla hafi í sameiningu orðið þess verðug að hljóta viðurkenningu Varðliða umhverfisins 2025. Viðurkenninguna hljóta nemendur fyrir fjölbreytt verkefni sín og efnistök þar sem vitundarvakning og umhverfisskilaboðum er miðlað með auðugum hætti og fjölþættri nálgun. Kennarar unglingadeildar og annað starfsfólk hópsins fær hrós fyrir að ryðja brautina. Fagleg aðkoma þeirra með góðum kynningum og hvetjandi heimsóknum og vettvangsferðum, auk góðs utanumhalds, vegur þungt í farsælli útkomu verkefna og vinnu sem þessari.
Erum við hér í Dalskóla ákaflega stolt af nemendum okkar og starfsfólki. Frétt og rökstuðning valnefndar má finna hér.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar fulltrúar nemenda og kennara tóku við viðurkenningunni. Frá hægri: Jóna Hildur, Ísabella Ósk, Ísafold Ingibjörg, Styrkár Vatnar, Gunnar Bergur, Daníel Kári og Halldóra